13janúar
Þar sem ég er vanafastur maður hef ég ákveðið að halda áfram með
blog.central.is/sveitavargurinn og þar af leiðandi hætta með þessa..
02janúar
Árið 2008 verður ár breytinga held ég, marg á eftir að breytast á þessu ári. Í tilefni af því hef ég ákveðið að breyta til og flytja mig yfir á bloggar.is.
Árið 2008, vá. Þetta er ekki lengi að líða, bara fyrir stuttu voru aldamótin, eða mér líður þannig.
Að loknum sprengingunum fyrir nýja árið hefst undirbúningur fyrir skólana, því bara eftir nokkra daga fara krakkarnir og unglingarnir að hverfa aftur inní skólastofurnar, götur verða tómar og fyllast af einveru, leikvellir verða þunglyndir, hláturinn hverfur að utan og eftir situr þögnin, úti og inni í skólastofunum. Og svo loks þegar skólinn er búinn kemur myrkrið, myrkrið kalda sem enginn vill, loksins þegar maður losnar úr prísund skólans, er dagurinn búinn.
Þess vegna var helgarfríið fundið upp.
En ef við höldum áfram að tala um berytingar, það á margt eftir að beytast á þessu ári. Ég t.d fæ bílpróf sömuleiðis allir, eða flestir úr mínum árgangi, vinir mínir úr árgangnum fyrir neðan útskrifast úr grunnskóla og byrja í menntaskóla. Aðrir eldri vinir mínir útskrifast úr menntaskóla og skella sér útí veröldina, fulla af óvæntum atburðum.
Og vonandi verða breytingar hjá ríkistjórninni, þá er ég að tala um að hún fari að efna einhver af þeim loforðum sem hún setti, og vonandi verða þessar breytingar okkur til góða.
Svo eru það áramótin. Áramót eru skemmtileg, eða þau eru það hjá mér. En það er eitt sem mér finnst kjánalegt við áramótin, það eru þessi áramotaheit. Af hverju að strengja heit á áramótunum, af hverju ekki bara í mai, eða bara hvenar sem er. Ef maður vill bæta sig í einhverju þá á maður ekki að bíða framm að nýju ári til þess, bara gera það þegar þér finnst þú vera tilbúin/nn.
Þessi áramóta heit fara nú samt ekkert fyrir brjóstið á mér, mér finnst þau bara kjánaleg. Ég neita því þó ekki að sumu fólki finnist þetta vera einhverskonar sáluhjálp og trúi að ef þau strengi þetta á áramótunum þá eru meiri líkur á að þetta takist en ef þau myndu strengja þetta í t.d. maí.
Að lokum vil ég koma eftirfarandi á fræmfæri.
Ég vil óska öllum gleðilegs nýs árs.
Ég vil þakka fyrir allt þetta skemmtielga fólk sem ég kynntist á gamla árinu, og fyrir að eiga góða vini.
Takk fyrir.
Bjarni Stefán.